Fjármálaeftirlitið hefur stöðvað tímabundið viðskipti með alla fjármálagerninga sem gefnir hafa verið út af Glitni banka hf, og teknir hafa verið til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði.

Í tilkynningu frá kauphöllinni segir að ákvörðun þessi sé tekin til að vernda fjárfesta, á meðan beðið er eftir tilkynningu frá félaginu.