Standard & Poor's lánshæfismatsfyrirtækið tilkynnti í dag um lánshæfismat Glitnis: Langtímaskuldbindingar eru metnar A- og skammtímaskuldbindingar A-2. Horfur í mati Standard & Poor's eru stöðugar, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Glitnir er fyrstur íslenskra banka til að fá lánshæfismat hjá S&P. Samkvæmt S&P endurspeglar matið sterka stöðu Glitnis á innanlandsmarkaði og bætta dreifingu í eignasafni bankans með vaxandi starfsemi bankans í Noregi, segir í tilkynningu.

Einnig er minnst á þann góða hagnað sem hefur verið í rekstri bankans á liðnum árum og almenn gæði eignasafnsins. S&P segir þá þætti sem vegi neikvætt við ákvörðun um lánshæfisflokk vera að bankinn hafi nokkra tiltölulega stóra lántakendur, hraðan vöxt eigna samhliða stefnumörkun sem mögulega eykur áhættu og það hvað heildsölumarkaður vegur þungt í fjármögnun bankans í erlendum myntum.

?Við erum ánægðir með þetta lánshæfismat og þá staðreynd að við erum nú komin í ?A flokk" hjá þremur stóru lánshæfisfyrirtækjunum. Gæði eignasafnsins og traust áhættustýring sýna vel styrk bankans og endurspeglast í þessu mati. Kaupin á BNbank í Noregi hafa enn bætt eignasafnið eins og S&P bendir á. Við trúum því að við getum haldið áfram að vaxa og auka hagnað Glitnis í samræmi við stefnumörkun bankans og þetta mat styður það," segir Bjarni Ármannsson í tilkynningunni.