Glitnir hefur gefið út afkomuviðvörun.

Stjórn Glitnis samþykkti þ. 29 september að boða til hluthafafundar eins fljótt og auðið er.

Þarverður tekin fyrir tillaga um kaup ríkissjóðs á nýju hlutafé í bankanum fyrir 600 milljónir evra fyrir 75% hlut. Viðbrögð markaðarins í gær voru að gengi hlutabréfa Glitnis lækkaði um 71%.

Sú verðmætarýrnun auk 23% lækkunar á ICEX15 á þriðja ársfjórðungi mun hafa í för með sér auknar afskriftir og neikvæð áhrif á afkomu Glitnis á þriðja og fjórða ársfjórðungi þessa árs, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Á þessum tímapunkti er ekki ljóst hve mikil áhrifin verða, en við samþykkt hluthafafundar á tilboði ríkissjóðs um aukningu eigin fjár um 84 milljarða þá mun Glitnir vera mjög vel í stakk búinn til að mæta auknum afskriftum.