Glitnir hefur verðlagt 300 milljón punda (39 milljarða króna) skuldabréfaútgáfu til fimm ára, segja talsmenn UBS og Barclays sem hafa umsjón með útgáfunni, að því er kemur fram í frétt Dow Jones fréttastofunnar.
Skuldabréfaútgáfan er til fimm ára og ber 6% vexti.
Bréfin eru seld undir pari, en þetta er önnur útgáfa Glitnis á Evrópumarkaði á þessu ári.