Framkvæmdastjórar hjá Glitni hafa gert kaupréttarsamning við bankann, að er fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Það eru þeir Tómas Kristjánsson, Finnur Reyr Stefánsson, Haukur Oddsson, Jón Diðrik Jónsson og Frank Ove Reite, og hefur hver þeirra gert samning um 10.000.000 hluti í bankanum, á verðinu kr. 18,1, til þriggja ára.