Glitnir hefur greitt árlegan kaupauka til starfsmanna í dag, markaðsvirði hlutanna eru um 174 milljónir króna, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni. Um er að ræða 6.811.379 hluti á genginu 25,5 krónur, sem er markaðsgengi.

Bjarni Ármannsson forstjóri og framkvæmdastjórarnir Finnur Reyr Stefánsson, Haukur Oddsson, Jón Diðrik Jónsson og Tómas Kristjánsson fengu sjö þúsund hluti, sem er 178.500 krónur að markaðsvirði. Guðmundur Hjaltason fékk 1.406 hluti, sem er um 35.800 krónur að markaðsvirði.

Þeir eru fruminnherjar og því tilkynningarskyldir til Kauphallarinnar.