Greiningardeild Glitnis hefur hækkað verðmatgengi sitt á Alfesca í 5,2 krónur á hlut úr 5,0. Gengi félagsins var 5,08 við lok markaðar í gær.

?Ráðlegging okkar til fjárfesta er að halda bréfum í félaginu horft til langs tíma. Markgengi (e. target price) er 5,5 en það er spá okkar um hvar gengi bréfa í félaginu standi að sex mánuðum liðnum.

Helstu ástæður fyrir hækkuðu verðmatsgengi eru góðar rekstrarhorfur samfara lækkandi laxaverði, hækkun á EUR/ISK gengiskrossi og loks eilítið lægri ávöxtunarkrafa,? segir greiningardeild Glitnis.