Verðmatsgengi greiningardeildar Glitnis á Marel hefur verið hækkað úr 70,8 í 79,0 kr. á hlut. Verðmatsgengið er 3,3% yfir gengi á markaði (76,5) og 6,8% yfir útboðsgengi (74,0) í fyrirhuguðu hlutafjárútboði félagsins.

Greiningardeild ráðleggur fjárfestum að halda bréfum í Marel horft til lengri tíma. Markgengi (e. target price) til 6 mánaða er 84 kr. á hlut en það er spá þeirra um hvar gengi bréfa í félaginu standi að 6 mánuðum liðnum.

Hlutafjárútboð Marel hefst 13. september næstkomandi.

Stjórn Marel hf hefur ákveðið að nýta heimild í samþykktum til að hækka hlutafé félagsins um 127.016.732 hluti.

Þar af verða 52.016.732 hlutir afhentir seljendum Scanvægt International A/S sem hluti af greiðslu fyrir alla hluti þeirra í Scanvægt, samanber tilkynningu til Kauphallarinnar 8. ágúst síðastliðinn.

Fjárfestum verða boðnir til kaups 75.000.000 hlutir í útboði. Hlutirnir verða boðnir á genginu 74 krónur fyrir hvern hlut og heildarsöluvirði nýrra hluta er því 5.550 milljónir króna. Tilgangur útboðsins er að styðja við frekari vöxt Marel.

Fyrirtækjaráðgjöf Landsbanka Íslands hf. hefur umsjón með útboðinu og hefur bankinn sölutryggt það að fullu miðað við útboðsgengi.