Glitnir hefur ákveðið að hækka vexti á verðtryggðum húsnæðislánum sínum um 0,13 prósentustig, segir í fréttatilkynningu.

"Vextir nýrra lána til viðskiptamanna bankans hækka því úr 4,35% í 4,48%," segir í tilkynningunni.

Þar er tekið fram að breytingin hafi hins vegar engin áhrif á kjör þeirra sem tekið hafa húsnæðislán Glitnis til þessa.