Í framhaldi af vaxtaákvörðun Seðlabanka Íslands um hækkun stýrivaxta um 0,50 prósentustig sem kynnt var fyrr í dag, hefur Glitnir ákveðið að hækka óverðtryggða vexti bankans á innlánum og útlánum um 0,25-0,50 prósentustig, segir í tilkynningu.

Breytingin tekur gildi frá og með 21. ágúst. Vextir á verðtryggðum húsnæðislánum Glitnis breytast ekki.