Bjarni Ármannsson, forstjóri Glitnis, segir í samtali við finnska viðskiptablaðið Kauppalehti, að bankinn hafi áhuga á því að feta í fótspor Kaupþings banka og hefja starfsemi í Finnlandi. Hann segir bankann þó íhaldssamari en Kaupþing banka.

Bjarni segir Glitni tilbúinn að skoða fyrirtæki eins og sænska verðbréfafyrirtækið Fischer Partners, sem Glitnir keypti í maí á þessu ári, í Finnlandi. Hann segir Glitni sjá möguleika í útlánum, fasteignaviðskiptum og eignarstýringu í Norður Evrópu.