Skilanefnd Glitnis hefur lokið sölu á Moderna Liv, líftryggingararmi Moderna Finance, til bresks eignarhaldsfélags sem sérhæfir sig í tryggingafélögum, Chesnara. Í hagsjá hagfræðideildar Landsbankans kemur fram að söluverðið er 250 milljónir sænskra króna sem jafngildir tæplega 4,2 milljörðum íslenskra króna.

Moderna Liv var hluti af 70 milljarða króna kaupum Milestone á sænska fjármálafyrirtækinu Invik árið 2007. Skilanefnd Glitnis tók yfir allt hlutafé Milestone í Moderna þann 16. mars síðastliðinn og náði samkomulagi við Chesnara um söluna mánuði síðar. Greitt var í reiðufé en það var breska ráðgjafarfyrirtækið Hawkpoint Partners sem ráðlagði Chesnara í samningaferlinu að því er segir í Hagsjá.