Glitnir hefur skuldbundið sig til að annast viðskiptavakt með útgefnum sérvörðum skuldabréfum (e. Covered Bonds) bankans.

Í því felst að setja fram daglega kaup- og sölutilboð í bréfin, áður en markaður er opnaður, að lágmarki 100.000.000 króna að nafnverði. Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera meiri en 0,5%.

Í tilkynningu Glitnis kemur fram að bankinn muni endurnýja tilboð sitt innan tíu mínútna frá því að því hefur verið tekið. Þá er og tekið fram að eigi viðskiptavakt Glitnis viðskipti á einum degi fyrir 500 milljónir króna að nafnvirði er honum heimilt að víkja frá hámarksmun kaup- og sölutilboða og eins áskilji bankinn sér rétt til að hætta að leggja fram kauptilboð ef hann eigi á einhverjum tíma þriðjung eða meira af útistandandi fjárhæð flokksins.