Glitnir er með yfir 6 milljarða evra í lausafé og endurfjármögnunarþörf móðurfélags um 2,5 milljarða evra og 1 milljarð evra hjá dótturfélagi Glitnis í Noregi, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.  Þar segir að því sé bankinn í góðri stöðu.

Ákvörðun Seðlabankans fyrr í vikunni um að rýmka reglur um veð í viðskiptum við bankann, mun hafa enn frekari jákvæð áhrif á lausafjárstöðu Glitnis, segir í tilkynningunni.

Nánari upplýsingar um lausafjárstöðu bankans verða birtar í ársuppgjöri Glitnis 29. janúar.