Scarborough Building Society hefur samþykkt að kaupa innlánastofnunina Portman Channel Islands (PCI) af Portman Building Society, samkvæmt tilkynningu til kauphallarinnar í London. Glitnir komst lengst af íslensku bönkunum í viðræðum um kaup á PCI.

Landsbanki Íslands átti einnig í viðræðum um kaup á PCI, en Portman Building Society fól ráðgjafarfyrirtækinu Gleacher Shacklock að finna kaupendur að einingunni. Ekki er vitað hve mikið Scarborough borgaði fyrir PCI.

Heildarinnlán PCI fjórfölduðust á síðustu fimm árum og eru talin nema í kringum 90 milljörðum íslenskra króna.