Stjórn Glitnis mun leggja til við hluthafafund að greiddur verði 0,66 krónur á hlut í arð. Arðgreiðsla vegna síðasta árs mun því nema 9,4 milljörðum króna. Arðgreiðslan nemur 24,63% af hagnaði bankans.

Lagt verður til við hluthafa að þeir fái helming arðgreiðslunnar í formi hlutafjár í Glitni.