Exista hafa borist stefnur frá Glitni banka og HAF Funding 2008-1 Limited þar sem gerðar eru þær dómkröfur að Exista greiði félögunum samtals tæplega 5,9 milljarða króna vegna lánasamninga sem upphaflega voru gerðir við Glitni banka.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Exista til Kauphallarinnar. Þar kemur jafnframt fram að Exista mun taka til varna í báðum málum enda hafi félagið gert upp kröfur Glitnis og tengdra félaga með skuldajöfnuði þar sem Exista eigi kröfur á Glitni á grundvelli gjaldmiðlasamninga.

„Gjaldmiðlasamningar eins og þeir sem gerðir voru við Glitni banka hf. voru gerðir til að verjast gengissveiflum, meðal annars í íslensku krónunni, en Exista færði reikninga sína í evrum þar sem meirihluti eigna og skulda félagsins voru í erlendri mynt,“ segir í tilkynningunni.

„Þótt Exista hafi með þessum hætti leitast við að verja eigið fé sitt þá hafði lækkun krónunnar ávallt neikvæð áhrif á eigið fé Exista.“

Þá segir jafnframt að Exista hafi allt frá hruni íslenska fjármálakerfisins í október 2008 leitast við að ná samningum við skilanefnd Glitnis um uppgjör gagnkvæmra krafna en hafi ekki getað sótt rétt sinn fyrir dómstólum vegna ákvæða í neyðarlögunum svokölluðu [sem sett voru þann 6. okt. Í fyrra].

Þannig telur Exista því jákvætt að málið sé nú komið í þann farveg að niðurstaða fáist fyrir dómstólum um slíkt uppgjör.