Glitnir hefur ákveðið að opna fyrir viðskipti með sjóði sem hafa lokaðir síðan á mánudag.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Glitni í kvöld en þar segir að sjóðunum hafi verið lokað vegna óvissu á markaði og til að vernda hagsmuni um 18.000 sjóðfélaga.

„Í sjóðum Glitnis eru nú engin skuldabréf á Stoðir hf.,“ segir í tilkynningunni.

Þá kemur fram að Glitnir banki hf. lýsir yfir stuðningi við verðbréfasjóði Glitnis og sýnir með þessu einarðan vilja til að tryggja hagsmuni sparifjáreigenda sem fjárfest hafa í sjóðum Glitnis.

Jafnframt segir að við endurmat á Sjóði 9 hjá Glitni sjóðum liggur fyrir að ávöxtun sjóðsins hefur lækkað um 7% sem er í líkingu við það sem gerst hefur undanfarið hjá sambærilegum sjóðum hér á landi.   „Ákvörðun um að loka fyrir kaup og sölu sjóðanna var nauðsynleg til að tryggja rétta verðmyndun á eignum viðskiptavina Glitnis í sjóðunum og jafnframt að skapa svigrúm og tíma til að koma eignum í verð,“ segir í tilkynningunni.

„Glitnir sætti nokkurri gagnrýni vegna þessarar ráðstöfunar en því miður var hún nauðsynleg. Glitnir harmar jafnframt þá erfiðleika sem þetta hafði í för með sér fyrir viðskiptavini bankans,“ segir jafnframt.