Glitnir opnaði í gær skrifstofu í Halifax í Kanda, segir í tilkynningu. Meginhlutverk skrifstofunnar er að styrkja tengsl við viðskiptavini bankans í Kanada með áherslu á matvælaiðnað, sérstaklega sjávarafurðir, sjálfbæra orkuframleiðslu og skipaiðnað, áherslusvið bankans á alþjóðlegum mörkuðum. Auk þess mun bankinn aðstoða viðskiptavini á heimamörkuðum bankans, Íslandi og Noregi, við að ná fótfestu á markaði í Kanada.

Skrifstofan mun veita viðskiptavinum Glitnis í Kanada þjónustu og auka áherslu á alþjóðleg verkefni á svæðinu. ?Það er afar mikilvægt fyrir alþjóðlega starfsemi bankans að ná fótfestu í Halifax. Glitnir er leiðandi á ákveðnum sérsviðum áherslu á orkuframleiðslu í Kanada og sérstaklega á þessu svæði," segir Jón Diðrik Jónsson, framkvæmdastjóri Fjárfestinga og alþjóðasviðs Glitnis, í tikynningunni.