Glitnir opnaði skrifstofu í Shanghai í Kína í dag, segir í tilkynningu. Meginhlutverk skrifstofunnar er að veita almenna fjármálaþjónustu á áherslusviðum bankans á alþjóðlegum möruðum; matvælaiðnaði, sérstaklega sjávarútvegi, sjálfbærri orkuframleiðslu og skipaiðnaði og einnig veita núverandi viðskiptavinum fjármálaþjónustu á sérsviðum bankans og aðstoða þau fyrirtæki sem eftir Norrænum samstarfsaðilum eða starfa á öðrum mörkuðum Glitnis.

Við opnunina voru Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra og Bjarni Ármannsson, forstjóri Glitnis auk fulltrúa kínverskra stjórnvalda og borgaryfirvalda í Shanghai, fulltrúa Norrænna fyrirtækja með aðsetur í Shanghai og gesta úr asísku viðskiptalífi.