Glitnir hefur aukið hlut sinn í Alfesa í 9,15% úr 3,26%, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni.
Gera má ráð fyrir að markaðsvirði hlutarins sé um 1,8 milljarða króna en gengið var ekki gefið upp í tilkynningunni. Fjöldi hluta var 346.285.731 en gengið var 5,12 við lok markaðar í gær, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.
Við þetta verður Glitnir þriðji stærsti hluthafi Alfesca.
Kjalar Invest B.V. ræður yfir 35,84% hlut og Kaupþing banki 20,51%, samkvæmt upplýsingum frá hluthafaskrá.