Glitnir Securities hefur milligöngu um sölu nýrra hlutabréfa að andvirði 24,2 milljóna Bandaríkjadala í fyrirtækinu CanArgo Energy. Fyrst var tilkynnt um útgáfuna 23. apríl síðastliðinn.

Átta erlendir fjárfestar hafa skuldbundið sig til að kaupa hlutaféð.

Hlutafjáraukningin var samþykkt á hluthafafundi í síðustu viku. Hlutafénu er ætlað að fjármagna framgang CanArgo í Georgíu-fylki í Bandaríkjunum, en starfsemi fyrirtækisins felst í olíuleit.