Glitnir banki hf. og Uppspretta eignarhaldsfélag ehf., félag í eigu Fons hf., hafa gert með sér samkomulag um að Glitnir annist sölu og sölustryggi Skeljung að því er kemur fram í tilkynningu.

Samkomulagið er gert með fyrirvara um áreiðanleikakönnun sem framkvæmd verður ánæstu vikum. Í framhaldinu ráðgerir Glitnir að hefja viðræður við áhugasama fjárfesta og mun greina nánar frá niðurstöðum þeirra um leið og þær liggja fyrir segir í tilkynningu.