Háskóli Íslands og Glitnir hafa undirritað styrktarsamning verkefnis í auðlindarétti við lagadeild HÍ til þriggja ára með 9 milljón króna framlagi. Um er að ræða sérstak átak lagadeildar og Lagastofnunar Háskóla Íslands í kennslu í auðlindarétti I-III og er markmið samningsins að styðja við kennslu og rannsóknir á því sviði.