Að undanförnu hafa eigendur, stjórnendur og lánadrottnar unnið að endurskipulagningu rekstrar MEST ehf. með það að markmiði að tryggja áframhaldandi starfsemi sem og að tryggja hag starfsmanna fyrirtækisins. Niðurstaða þessarar vinnu er að nýtt félag, Steypustöðin Mest ehf., hefur tekið yfir rekstur steypustöðva og helluframleiðslu MEST ehf. í Hafnafirði, Reykjavík og á Selfossi. Þá mun hið nýstofnaða félag einnig taka yfir verslun með múrvörur MEST ehf., að því segir í fréttatilkynningu.

Með þessum aðgerðum er verið að tryggja áframhaldandi rekstur sem og atvinnu yfir 100 starfsmanna fyrirtækisins. Góður rekstrargrundvöllur er fyrir steypustöð og hellusteypu , segir í fréttatilkynningunni, og mun nýja félagið því byggja á sterkum grunni.

Glitnir, sem var í hópi stærstu kröfuhafa MEST ehf., er eigandi nýja félagsins og er það markmið bankans að finna nýja eigendur að félaginu á næstu mánuðum.

Forstjóri Steypustöðvarinnar Mest ehf. er Hannes Sigurgeirsson. Hann hefur áralanga reynslu af slíkum rekstri og var m.a. um árabil forstjóri Steinsteypunnar og Steypustöðvarinnar. Stjórnarformaður félagsins er Jón Steingrímsson, viðskiptafræðingur og rekstrarráðgjafi.

Framtíð annarra rekstrareininga fyrirtækisins er í höndum eigenda MEST ehf., stjórnarformaður þess félags er Pétur Guðmundsson.