Skilanefnd Glitnis hefur farið þess á leit við Kauphöllina að skráð hlutabréf Glitnis banka hf. verði tekin úr viðskiptum.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar og er vísað til inngrips FME í rekstur bankans í síðustu viku.

Í morgun óskaði skilanefnd Landsbankans eftir því að vera skráð úr Kauphöllinni og voru bréf bankans tekin út við lok viðskipta í dag.