6 mánaða uppgjör Glitnis - 2007
6 mánaða uppgjör Glitnis - 2007
© Aðrir ljósmyndarar (VB MYND)
Jón Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri FL Group, Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, og Þorsteinn M. Jónsson, sem var um tíma stjórnarformaður Glitnis, freista þess að fá samþykkt fyrir dómi að stjórnendatrygging Tryggingamiðstöðvarinnar vegna starfa þeirra fyrir Glitni eigi við. TM hefur neitað að samþykkja að svo sé og því er deilt um málið fyrir dómstólum. Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur 23. ágúst nk. samkvæmt dagskrá Héraðsdóms Reykjavíkur.