Lárus Welding, forstjóri Glitnis, Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður Glitnis og Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður, voru að mæta á fund fulltrúa ríkisstjórnarinnar í Ráðherrabústaðnum nú fyrir skömmu.

Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, hefur einnig bæst í hópinn en fyrir voru Geir H. Haarde, Össur Skarphéðinsson og Jóhanna Sigurðardóttir á staðnum.