Veitingastaðurinn Gló hefur opnað þriðja stað sinn í hönnunarhúsinu ATMO á Laugavegi. Fyrir eru veitingastaðir undir merkjum Gló í Listahúsinu í Laugardalnum og í Hafnarborg í Hafn­arfirði. Það er Solla Eiríks, áður kennd við Grænan kost, sem er yfirkokkur á staðnum en þar er boðið upp á hráfæðisrétti, heita grænmetisrétti, súpur, sal­öt og fleira.

Gló á Laugavegi var opnuð fyrir tveimur vikum og er auk veitingastaðarins í húsnæðinu samankomnir sextíu íslenskir hönnuðir sem selja vörur sínar.