Fjárfestingarfélagið Gnúpur, sem er í eigu fjölskyldu Kristins Björnssonar, fjárfestisins Magnúsar Kristinssonar og Þórðar Más Jóhannessonar, hefur selt í FL Group fyrir um 9,5 milljarða króna.

Félagið minnkaði þar með eignarhlut sinn í 17,2% úr 22,2%, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni. Um er að ræða 397.249.296 hluti og fóru viðskiptin fram á genginu 24 krónur á hlut.

FL Group keypti hlutinn og jók stöðu sína í eigin bréfum í 7% úr 2%.