Mikill áhugi á löngum ríkisbréfum verður að teljast afar jákvæður fyrir ríkissjóð og eins fyrir skuldabréfamarkaðinn.

Þetta kemur fram í Morgunkorni Íslandsbanka þar sem fjallað e rum góða þátttöku í útboði Lánamála ríkisins á ríkisbréfum í flokki RIKB11 og RIKB25 síðastliðinn föstudag.

Mikil spurn var eftir lengsta flokki ríkisbréfa, RIKB25, og jafnframt reyndist áhuginn nú mun meiri á RIKB11 sem í síðustu útboðum hefur fengið afar dræmar undirtektir.

Í tilkynningu Lámála kemur fram að alls bárust 61 gild tilboð í RIKB25 að fjárhæð rúmlega 17 milljarðar króna að nafnverði. Var tilboðum tekið fyrir 6,7 milljarða króna á ávöxtunarkröfunni 7,83%.

Fram kemur að innlendir fagfjárfestar á borð við lífeyrissjóði og verðbréfa- og fjárfestingasjóðir hafa verið stórtækir kaupendur RIKB25 í undanförnum útboðum og gerir Greining Íslandsbanka ráð fyrir að slíkir fjárfestar hafi einnig verið atkvæðamiklir í útboðinu nú.

„Þessi mikla spurn eftir löngum ríkisbréfum hlýtur að teljast afar jákvæð fyrir ríkissjóð m.v. þá áherslu að lengja í endurgreiðsluferli skulda hans. Jafnframt teljum við að niðurstaðan sé afar góð fyrir skuldabréfamarkaðinn,“ segir í Morgunkorni.

Eftir útboðið hefur ríkisbréfaflokkurinn RIKB25 stækkað úr tæpum 64 milljörðum króna í um 70 milljarða.

„Margir töldu það illmögulegt að byggja upp óverðtryggðan langtímavaxtaferil á íslenskum skuldabréfamarkaði þegar farið var í það verkefni fyrir nokkrum misserum en m.v. áhuga fjárfesta á löngum óverðtryggðum ríkisskuldabréfum er ljóst að svo er ekki,“ segir í Morgunkorni.

„Í raun er uppbygging slíks ferils forsenda þess að hægt sé að bjóða íslenskum fyrirtækjum og einstaklingum upp á langtíma óverðtryggð lán á föstum vöxtum, til að mynda íbúðalán.“

Í flokk RIKB11 bárust 21 tilboð að fjárhæð 7,1 milljarð króna að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 3,75 milljarða á 7,34% ávöxtunarkröfu. Flokkurinn er að stærstum hluta í eigu útlendinga. Þannig áttu erlendir aðilar nærri tvo þriðju hluta flokksins í nóvemberlok.

„Teljum við líklegt að innlendir aðilar hafi verið áhugasamari um RIKB11 nú og að erlendir aðilar haldi sig enn fast við þá stefnu að festa fjármuni sína sem allra styst hérlendis,“ segir í Morgunkorni.

„Má því ætla að hlutdeild þeirra í flokknum hafi minnkað eftir útboðið á föstudaginn. Með hækkandi sól gæti hins vegar áhugi útlendinga á flokknum aukist þegar binditími hans fer undir þau eins árs mörk sem margir þeirra horfa til.“

Ríkisvíxlaútboð á fimmtudaginn

Þá kemur einnig fram að fyrirhugað er útboð ríkisvíxla næstkomandi fimmtudag skv. útboðsdagatali Lánamála ríkisins. Í janúar fór fram útboð á ríkisvíxlum í flokkinn RIKV 10 0517 og bárust alls 33 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 22 milljarða króna að nafnverði. Var tilboðum að fjárhæð 12,3 milljarða tekið á 8% flötum vöxtum.

Á gjalddaga í febrúar eru 32 milljarðar króna af ríkisvíxlum og má því eiga von á myndarlegri eftirspurn.

„Teljum við að óvænt lækkun vísitölu neysluverðs í fyrri mánuði svo og ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans um að lækka stýrivexti bankans komi til með að ýta undir lægri ávöxtunarkröfu í víxlaútboðinu nú í febrúar, enda hefur óverðtryggði vaxtaferillinn hliðrast töluvert niðurá við undanfarið,“ segir í Morgunkorni.