Ávöxtunarleiðir Almenna lífeyrissjóðsins skiluðu allar góðri ávöxtun árið 2006. Þetta skýrist af hækkun á innlendum og erlendum hlutabréfum. Heimsvísitala erlendra skuldabréfa hækkaði um 20,1% í dollurum en um 36,6% í íslenskum krónum þar sem íslenska krónan veiktsit um 13,8% gagnvart dollar. Vísitala aðallista Kauphallar Íslands hækkaði um 15,2% á síðasta ári, segir í tilkynningu frá Glitni.

Ávöxtun skuldabréfa sjóðsins var hins vegar lág þar sem sjóðurinn metur skuldabréfin á markaðsverði. Viðmiðunarvísitala skuldabréfa Ævisafna I og II hækkaði um 7,5% á árinu sem er einungis um 0,5% umfram hækkun vísitölu neysluverðs.

Í árslok 2006 námu heildareignir Almenna lífeyrissjóðsins 82,7 milljörðum króna og stækkaði sjóðurinn því um 18,7 milljarða eða um 29% á árinu.