„Það hefur verið mjög góður gangur í veiðunum, jafnt hjá frystitogurunum sem og ísfisktogurunum. Til marks um það get ég nefnt að frystitogararnir þrír voru með 1.200 milljón króna aflaverðmæti í júnímánuði og aflaverðmæti Örfiriseyjar RE í síðustu tveimur túrum, á alls 77 úthaldsdögum, nam einum milljarði króna.“

Þetta segir Birkir Hrannar Hjálmarsson, útgerðarstjóri togara HB Granda, í frétt á heimasíðu fyrirtækisins.

Að sögn Birkis voru bæði Örfirisey og Vigri RE að veiðum í Barentshafi en bæði skip fóru ekki þangað norður fyrr en eftir sjómannadag. Það tók Vigra sex sólarhringa að komast á miðin þannig að skipin voru ekki nema um 20 daga á miðunum í júnímánuði. Höfrungur III AK var á sama tíma á heimamiðum og var aflinn að uppistöðu grálúða en einnig þorskur og ufsi. Heildarafli skipsins í síðasta túr var tæplega 600 tonn upp úr sjó.

„Það hefur einnig gengið mjög vel hjá ísfisktorunum. Við erum bara með tvo ísfisktogara í rekstri nú þegar Engey RE er farin og Helga María AK er í leiguverkefni á Grænlandi. Pressan á áhafnir Akureyjar AK og Viðeyjar RE er því meiri en ella en við erum búnir að stilla því þannig upp að ísfisktogararnir munu landa þrisvar sinnum í viku. Þeir voru með 1.550 tonna afla í júnímánuði og það verður ekkert slegið af í vinnslunni,“ segir Birkir.