Í júní 2016 var 55 skjölum um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 2.180 milljónir króna. Af þessum skjölum voru 25 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði. Utan höfuðborgarsvæðisins var 53 skjölum um atvinnuhúsnæði þinglýst. Heildarfasteignamat þeirra eigna var um 1.724 milljónir króna. Þetta kemur fram á vef Þjóðskrár Íslands.