Tekjur Creditinfo Lánstrausts hf. námu 909 milljónum króna í fyrra og voru um 44 milljónum meiri en árið 2013.

Rekstrargjöld fyrirtækisins lækkuðu hins vegar milli ára, sér í lagi vegna lækkunar launa og tengdra gjalda.

Meðalfjöldi starfsmanna var 45,5 á síðasta ári og lækkaði um fjóra starfsmenn frá árinu 2013.

Hagnaður félagsins var 125,7 milljónir króna, en var 50,3 milljónir árið 2013.