Dressmann á Íslandi ehf. skilaði 59,4 milljóna króna hagnaði í fyrra, samkvæmt samandregnum ársreikningi félagsins. Rekstrarhagnaður nær tvöfaldaðist milli ára og nam 86 milljónum króna. EBITDA-hagnaður nam 71,8 milljónum króna í fyrra, en var 33,5 milljónir árið 2012.

Hagnaður fyrir skatta nam 72,2 milljónum króna. Eignir félagsins námu í árslok 2013 294,6 milljónum króna og jukust um rúmar 60 milljónir króna á árinu. Skuldir jukust á sama tíma um rúmar þrjár milljónir og námu í árslok 115,8 milljónum króna. Eigið fé nam um síðustu áramót 178,8 milljónum króna.