Hagnaður Garra ehf. nam rúmum 213 milljónum króna á síðasta ári og stóð hagnaðurinn í stað á milli ára.

Rekstrartekjur fyrirtækisins námu 3,2 milljörðum króna og jukust um rúmlega 300 milljónir króna frá árinu 2013. Aftur á móti jókst launakostnaður, kostnaðarverð seldra vara og annar rekstrarkostnaður milli ára.

Eignir fyrirtækisins námu 1.293 milljónum króna í árslok en skuldir voru 506 milljónir króna. Nam eigið fé félagsins því 787 milljónum króna í lok ársins og var eiginfjárhlutfall þess því 61%.

Garri ehf. er innflutningsfyrirtæki sem var stofnað árið 1973 og hefur því verið starfandi í 40 ár. Heildverslunin sérhæfir sig í sölu og þjónustu við matvælafyrirtæki, stóreldhús, veitingastaði og opinbera aðila.

Magnús R. Jónsson stofnaði Garra og er stærsti hluthafi fyrirtækisins með 67,5% hlut. Magnús Rósinkrans Magnússon, sonur hans, er framkvæmdastjóri fyrirtækisins og á jafnframt 22,5% eignarhlut.