17,4 milljóna króna hagnaður var af rekstri Nings ehf. á árinu 2012 en félagið rekur samnefndan veitingastað. Bjarni Óskarsson á 93,75% af hkutafé félagsins samkvæmt ársreikningi félagsins. Rekstrarniðurstaðan er talsvert betri en árið 2011 þegar félagið tapaði 4,9 milljónum króna.

Eigið fé félagsins var í árslok 2012 rúmar 14 milljónir króna en eignir félagsins námu samtals 67,7 milljónum og skuldir þess 53,3 milljónum.