Tiny Places
Tiny Places

Íslenski tölvuleikjaframleiðandinn hefur gefið út iPhone- og iPad-leikinn Tiny Places. Í leiknum eiga spilarar að hjálpa kameljóninu Napóleon að sleppa úr prísund og minnir leikurinn að sumu leyti á iPhone-leikinn Cut The Rope, fyrir þá sem þekkja hann.

Gogogic hefur áður gefið út leikina Symbol6 og SoftFreak Fiesta fyrir iPhone og leikinn Vikings of Thule fyrir Facebook. Gogogic er svo með annan leik í vinnslu, Godsrule, sem mun verða spilaður á Facebook og iPad-spjaldtölvum. Gogogic er framleiðandi Tiny Places, en útgáfa og markaðssetning er í höndum Big Fish Games, sem er umsvifamikið í tölvuleikjaútgáfu.