David Goldberg, framkvæmdastjóri SurveyMonkey, lést vegna höfuðáverka sem hann hlaut eftir að hafa fallið á hlaupabretti. Greint er frá þessu á fréttavef BBC .

Goldberg var eiginmaður Sheryl Sandberg sem er aðalframkvæmdastjóri Facebook. Fyrst var greint frá andláti hans um helgina en þá lá dánarorsök ekki fyrir. Nú hefur hins vegar verið greint frá því að hann slasaðist alvarlega við líkamsræktaræfingar á Four Seasons hóteli í Mexíkó á föstudagskvöld.

Mun hann hafa runnið til á hlaupabretti með þeim afleiðingum að hann rak höfuðið í brettið og hlaut alvarlega höfuðáverka. Hann var meðvitundarlaus þegar hann fannst en þó með lífsmarki, en lést eftir komu sína á spítala í grenndinni.