Bandaríski fjárfestingarbankinn Goldman Sachs veitti 321 starfsmanni stöðuhækkun en stöðuhækkanirnar eru gerðar árlega. Í fyrra voru þær 272 og hafa aldrei verið jafn margar og nú.

Tilkynning kemur degi eftir að félagið, sem hefur náð að koma sér á beinu brautina eftir fjármálakreppuna, tilkynnti um 110 nýja eigendur sem deila hluta af hagnaði bankans.