Hjólbarðaframleiðandinn Goodyear hefur boðið Hollywoodstjörnunum Lindsay Lohan og Amanda Bynes að koma í heimsókn í höfuðstöðvar fyrirtækisins í Akron í Ohio þar sem þeim verður boðið upp á fyrirtaks ökukennslu á reynsluakstursbraut Goodyear. Leikkonurnar hafa báðar verið í fréttum undanfarnar vikur og mánuði fyrir ítrekuð umferðalagabrot og minniháttar árekstra og því hefur Goodyear boðist til að aðstoða þær.

Goodyear sendi þeim báðum bréf, sem greinilega er ætlað að vera í léttari kantinum, og þar er leikkonunum lofað því að engir paparazzi-ljósmyndarar verði viðstaddir taki þær boðinu. Áhugavert er í ljósi þessa að með einhverjum hætti hefur bréf Goodyear til Lindsey Lohan ratað á netið og varla er það Lindsay sjálf sem hefur birt það. Bréfið endar á því að Chris Curran, yfirmaður almannasamskipta Goodyear, segist vona að Lindsay taki boðinu, öryggis hennar vegna sem og annarra vegfarenda.