Google hefur í samstarfi við Ímark, Nordic eMarketing og mbl.is hafið verkefni sem felur í sér að íslensku markaðsfólki gefst kostur á að markaðssetja vefi sína í gegnum Google AdWords.

Með því að fylla út form á emarketing.is gefst kostur á því að fá 75 evru inneign hjá Google og inneignin virkar bæði til auglýsinga á Íslandi og erlendis, en er aðeins fyrir íslensk fyrirtæki.