Netfyrirtækið Google á nú í viðræðum um kaup á hreyfimyndasíðunni YouTube fyrir um 110 milljarða króna, segir í frétt Dow Jones.

Viðræðurnar eru enn á viðkvæmu stigi og má vel vera að ekkert verði úr þeim, segir aðili sem stendur nærri málinu.

Talsmenn Google neituðu að tjá sig um það sem þeir kölluðu orðróma og getgátur.