Google hefur keypt heimasíðuna beatthatquote.com, sem gefur fólki kost á að bera saman verð ýmissar þjónustu, á 37,7 milljónir dala. Fyrirtækið er breskt.

Á heimasíðunni er meðal annars hægt að bara saman verð og kjör á tryggingum, lagaþjónustu og fjármálaþjónustu. Þjónustan er lík þeirri sem Google á fyrir í Bandaríkjunum og kallast Comparison Ads, að því er kemur fram í frétt BBC. Sú þjónusta býður upp á samanburð á kjörum kreditkorta og á lánamarkaði.