Google hefur í fyrsta sinn opnað gagnaver sín fyrir umheiminum með myndum og myndbönum þar sem starfsemin er sýnd.

Þarna má meðal annars sjá hundruð þúsunda netþjóna, litríka kapla og starfsmenn sem hjóla um hin stóru gagnaver. Mikið hefur verið lagt upp úr því vernda friðhelgi einkalífs viðskiptavina Google með miklu öryggi í kringum gagnaverin og því hafa fáir farið þar inn.

Þessi stóru gagnaver Google eru staðsett í Berkeley County, Council Bluffs, Douglas County, Mayes County, Lenoir, The Dalles, Hamina og St. Ghislain. Verið er að byggja ný gagnaver í Chile, Hong Kong, Singapore og Taiwan.