Google, sem rekur stærstu leitarvélina á vefnum, hefur ekki tekist að komast inn í ný markaðssvæði á vefnum, segir í frétt Dow Jones, en ný markaðstækifæri í bloggi, hreyfimyndasíðum og samskiptasíðum hafa ekki reynst Google sem skyldi.Þrátt fyrir yfirburðarstöðu á leitarvélamarkaðnum hafa nýrri og óþekktari fyrirtæki á borð við YouTube, Technorati og MySpace sannað að hægt er að standa í hárinu á stærri markaðsöflum á vefnum.
Þrátt fyrir að þessi nýju markaðsvæði séu að auka í sig veðrið, eru tekjur sem hlotnast af þeim ekkert í líkingu við þá 72,6 milljarða króna sem Google aflar á hverjum fjórðungi, segir í fréttinni. Greiningaraðilar segja að þessi nýju tækifæri séu lykillinn að velgengni í framtíðinni og þess vegna ætti það að vera Google áhyggjuefni að ekki tókst betur til. Áhrifin munu þó ekki koma í ljós á næstunni, en Google geti ekki treyst á leitarvélina sem sína aðaltekjulind um alla tíð.
YouTube, sem er vefsíða sem gerir notendum kleift að finna hreyfimyndabrot sem leynast víðsvegar um veraldarvefinn, hefur fengið fjórum sinnum meiri gestafjölda en sambærileg þjónusta sem Google býður upp á, eða 19,6 milljónir gesta á mánuði.50 milljónir notenda eru nú skráðir á MySpace síðuna, sem er einskonar samskiptanet þar sem notendur skiptast á upplýsingum, en sambærilegar síður Google, Orkut og Google Groups falla gersamlega í skuggann af velgengni MySpace.
Technorati er nú vinsælasta blogg-leitarvélin, samkvæmt Nielsen/NetRatings, en blogg-síður eru nú sífellt vinsælli upplýsingamiðill. Ný blogg-leitarvél Google náði ekki inn á lista yfir 25 vinsælustu blogg-leitarvélarnar. Þó að tekjur sem hlotnast af þessum nýju markaðssvæðum séu ekki miklar í dag, eru greiningaraðilar sammála um að í framtíðinni muni tekjutækifæri stóraukast, segir í fréttinni.