Leitarrisinn Google er nú næststærsta tæknifyrirtæki heims á eftir Apple og hefur þar með ýtt Microsoft niður í þriðja sætið. Þetta kemur fram í frétt Bloomberg í dag. Gengi bréfa Google hafði hækkaði um 1% við lokun markaða í gær og endaði í 761,78 dölum á hlut. Það þýðir að markaðsvirði fyrirtækisins er nú um 249,9 milljarðar dala. Á móti lækkaði gengi bréfa Microsoft um tæplega eitt prósent og er markaðsvirði þess um 247,2 milljarðar.
Fram kemur að þessi þróun sé bæði rakin til þess að Google er nú orðið risastórt á auglýsingamarkaðnum á netinu, en ekki síst til þess að fólk sinni tölvuvinnslu sinni í auknum mæli á netinu. Forrit sem hönnuð eru fyrir einstakar tölvur, eins og Microsoft hefur í gegnum söguna byggt sinn rekstur á, eru því ekki eins mikilvæg og áður.