Göran Persson, fyrrverandi forsætisráðherra Svíþjóðar, verður meðal þeirra sem halda erindi á ársfundi Samtaka atvinnulífsins sem hefst kl. 14 í dag í Silfurbergi í Hörpu.
Auk formanns SA, Björgólfs Jóhannssonar, mun Sigmundur Davíð Gunnlaugsson flytja ávarp.
Göran Persson og Stephane Garelli, framkvæmdastjóri IMD - rannsóknarstofnunar um samkeppnishæfni þjóða heims og prófessor við IMD viðskiptaháskólann í Sviss, munu báðir flytja erindi sín í gegnum Skype.
Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu SA hafa um 400 manns skráð sig á fundinn.