Hagnaður Air France-KLM Group, stærsta flugfélags í Evrópu, nánast tvöfaldaðist á öðrum ársfjórðungi og var vel umfram væntingar. Velgengni fyrirtækisins er meðal annars rakin til hækkunar á fargjöldum um aukningu í ferðalögum til Kína og Indlands. Hækkun á verði hlutabréfa í Air France-KLM Group í kjölfar aukins hagnaðar hefur ekki verið meiri í fjögur og hálft ár.